| Mán jan 30 @08:00 - 05:00eh Vinnukvöld |
| Mán jan 30 @08:00 - 05:00eh Vinnukvöld |
| Mán feb 06 @08:00 - 05:00eh Æfing væntanlega úti |
| Mán feb 13 @08:00 - 05:00eh Vinnukvöld |
| Mið feb 15 @20:00 - 10:30eh Vinnukvöld Fyrstuhjálparhóps |
| Mán feb 20 @08:00 - 05:00eh Flokkakvöld báta og fjalla |
| Mán feb 27 @08:00 - 05:00eh flokkakvöld bílar |
| Mán mar 05 @08:00 - 05:00eh Vinnukvöld |
| Mán mar 12 @08:00 - 05:00eh Æfing |
| Mán mar 19 @08:00 - 05:00eh Vinnukvöld |
Tilkynningar
|
Hvern ætlar þú að hringja í þegar þú ert í vanda?
Þegar veður er vont, einhver er týndur eða þegar einhver þarf á aðstoð að halda. Hver er það sem er tilbúin að hjálpa?
Núna þurfum við á þinni hjálp að halda. Flugeldasalan er ein stærsta fjáröflun björgunarsveitanna og þú getur stutt við okkur með því að koma til okkar og versla af okkur flugelda. Ekki er verra að það er gaman að skjóta upp flugeldum :) Björgunarfélag Árborgar er með sölustaði í Björgunarmiðstöðinni, Árvegi 1, beint á móti lögreglustöðinni og vestan við smiðshúsið á Stokkseyri. Við óskum ykkur gleðilegra og slysalausra áramóta. Gera athugasemd
Síðast uppfært (Föstudagur, 30. desember 2011 14:59) Flugeldablað 2011
Flugeldablaðið 2011 er komið úr prentun og það er búið að dreifa því í flest öll hús í Árborg Blaðið í ár er tvöfalt stærra en síðustu ár og meira af greinum um björgunarsveitina og frásagnir tengdar henni. Blaðið má nálgast í stafrænni útgáfu hér : Síðast uppfært (Miðvikudagur, 28. desember 2011 10:34) Komin í eigin húsnæði aftur
Í dag var skrifað undir kaupasamning á nýrri Tryggvabúð en hún er í Björgunarmiðstöð Árborgar við Árveg. Þetta eru mikil gleðitíðindi fyrir björgunarsveitarfólk og mikill léttir að húsamál séu komin á hreint.
Nýja aðstaðan er hátt í 800m2 að stærð en töluverð vinna er eftir til að fullklára húsnæðið að innan en stefnt er að því að allt verði orðið klárt á nýju ári.
Neyðarlínan keypti einnig smá hlut í húsinu sem mun verða notaður undir fjarskiptabúnað á vegum Neyðarlínunar. En Þórhallur Ólafsson hjá Neyðarlínunni hefur unnið gríðarlega vel fyrir Björgunarfélagið í þessum húsamálum og er næsta víst að ef hans hefði ekki notið við væri ekki búið að skrifa undir kaupsamning. Síðast uppfært (Föstudagur, 02. desember 2011 23:12) |
Undanfaraæfing á Gígjökull
Sunnudaginn 27. Nóvember s.l fór tilvonandi undanfarahópur BFÁ í æfingaferð á Gígjökul. Undanfarahópurinn tilvonandi er sameginlegt verkefni Björgunarfélags Árborgar, Hjálparsveitar skáta í Hveragerði og Björgunarsveitarinar Sigurgeirs. Stefnt er að því að hópurinn fái undanfara úttekt vorið 2013 en töluverð undirbúningsvinna hefur verið unnin og stendur hún enn yfir. Hópurinn hefur æft reglulega undanfarin misseri, og núna síðast á Gígjökul. Lítið hefur verið ferðast á jöklinum eftir eldgosið í Eyjafjallajökli 2010 en þá hopaði jökullinn töluvert og mikið af djúpum sprungum myndast í kjölfarið. Aðstæður á jöklinum voru því erfiðar, mikið um sprungur og u.þ.b 50cm púðursnjór inn á milli. Veðrið var með skásta móti en það gekk þó á með éljum. Snúið var við í um 600 m hæð og haldið aftur niður á leið. Síðast uppfært (Sunnudagur, 04. desember 2011 01:09) Ofur-Buni
Í dag fengu félagar í BFA kynningu á ofur sæsleða ,sér hönuðum björgunarsæsleða frá sænska björgunarfélaginu.Er skemmst frá því að segja að svíunum hefur tekist vel upp í smíði þessari græju. Síðast uppfært (Sunnudagur, 04. desember 2011 01:03) LEIT
Síðustu dagar hafa verið annasamir Björgunarfélagnu, við höfum tekið þátt í leitinni að erlenda ferðamanninum sem fannst loksins í dag. Síðast uppfært (Laugardagur, 12. nóvember 2011 16:13) Neyðarkallinn
Um helgina er BFA að selja neyðarkallinn, salan hefur gengið vel hingað til og hafa meðlimir BFA verið duglegir að mæta í söluna. Á myndinni hér fyrir ofan eru Soffía Sigurðardóttir og Alex Ægisson að "moka" neyðarkallinum út í Bónus í dag.
|



